Þarna er þessu liði rétt lýst

Mér hefur alltaf þótt einkennilegt hvað "stjórnarmyndunin" eftir síðustu kosningar tók stuttan tíma miðað við hve mikið bar á milli Vg og Samf. fyrir kosningar m.v. yfirlýsingar forystumanna flokkanna. Þá blés Steingrímur sig út sem algeran andstæðing aðildarviðræðna að ESB: "Ekki hlusta á þetta ICESAFE-kjaftæði, AGS útí hafsauga og ESB aðild kemur ekki til greina !" Ekki orðrétt eftir honum haft en þetta var merkingin ótvíræð ! Ég vil meina að 70 - 90% atkvæða Vg í síðustu kosningum hafi fengist út á þessi "loforð", svo eitt klapp á kollinn frá Jóhönnu og loforð um embætti og leyfi til að sitja við hlið hennar eins og laminn hundur á blaðamannafundum þá eru allar yfirlýsingar og öll loforð gleymd og grafin !

Hverjar voru svo yfirlýsingarnar á stóra Vg fundinum á Akureyri nú um helgina: Krónuna áfram sem gjaldmiðil og ÓBREYTT YFIRLÝST ANDSTAÐA VIÐ INNGÖNGU Í ESB ! Til hvers að leggja þá velferðarkerfið endanlega í rúst fyrir aðildarviðræður ? Ég bara spyr !!!!!!!

Er einhver lifandi leið að treysta fólki sem gengur svona þvert á bak orða sinna, ég segi nei engan veginn, ekki síst með það að leiðarljósi að þau skuli leyfa sér að skera niður allar fjárveitingar til velferðar Íslendinga en þegar kemur að ESB umsókn þá eru til nægir peningar, þau koma í fjölmiðla, hvert á fætur öðru grátandi um að ekki séu til peningar til eins eða neins en ESB, það er allt annað mál !!!!

M.b.kv. Kristján


mbl.is Sömdu fyrir kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Já, nákvæmlega.  Og nei, það er engin leið að treysta eða trúa þeim sem koma svona óheiðarlega og rotið fram.  Gæti ekki trúað einum manni í Jóhönnuflokknum og fæstum lengur í VG. 

VG menn verða nú að lifa við að verða aftur örflokkur fyrir að vinna á bak við kjósendur og beinlínis fyrir Jóhönnu og co. sem vinna í þágu banka og erlendra velda.   Það er ekki nema von Jóhönnuflokkurinn fer líka sí-minnkandi.

Elle_, 1.11.2011 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband